Kíkiđ!!!!
28. febrúar 2008 klukkan 23:06
Bara í heimsókn á MBL moggabloggið mitt nenni ekki að skrifa hingað inn enda fáir sem kíkja þannig að ekki skrifa ég hér að svo stöddu slóðin errrr www.skordalsbrynja.blog.is
Enn og aftur....
14. febrúar 2008 klukkan 00:54
Já ákvað að skella mér á mogga bloggið svona til gamans og prufa líst svo ljómandi vel á það en ætla samt ekki að hætta hér verð áframm með færslur hérna svo fylgist með ef þið viljið kíkja og kvitta á moggablogg þá er slóðin....skordalsbrynja.blog.is
Frystikista...
10. febrúar 2008 klukkan 12:42
Góðan dag hérna þennnan sunnudaginn
Einhvern tíma seinnipartin í gær fór allt heitavatn af skaganum og já það var nú frekar fljótt að kólna hér á bæ og um kvöldmat var orðið ansi kalt
ekkert bólaði á að ofnar hitnuðu þannig að allir farnir að kvarta um kulda brrr þannig að maggi náði í rafmagnsofn út í skúr sem við létum blása heitu lofti um stofuna en vorum samt með sængur að horfa á tv en það var orðið ansi kalt í herbergjunum hjá okkur og köld rúmm en allir náðu að sofna!! held að ofnar hafi farið að hitna um 6 leitið í morgunn þannig að það var orðið ansi hlýtt þegar ég vaknaði um 9 leitið ekki gott þegar svona langur tími er án hita en vonandi næ ég þessari kvef pest úr mér þrátt fyrir kulda og hroll hef ekkert gert annað en að hnerra í morgun
jæja kem inn seinna ætla bara að vera í letikasti í dag skordal kveður að sinni....
Einhvern tíma seinnipartin í gær fór allt heitavatn af skaganum og já það var nú frekar fljótt að kólna hér á bæ og um kvöldmat var orðið ansi kalt
Bolla bolla..
04. febrúar 2008 klukkan 16:00
Við fengum okkur bollur á föstudag svo var úðað í sig bollum á Laugardag skruppum síðan til RVK í gær fórum í brjálaðið sem var í kringlunni úff lokaútsölur útsöluborð um alla ganga og fólksfjöldin eftir því gramsandi í öllu eins og þeim væri borgað fyrir það sumt bara drasl eða föt sem passar á tja veit ekki hvern nr sem engin getur notað
Heyrðu var hissa eða hneygsluð í gær já ÞAÐ eru komin páskaegg í Hagkaup frusss aðeins of snemma fynnst mér þetta fer allt að verða svo óspennadi fyrir börnin bæði jól og páska allt gert og auglýst mörgum vikum fyrr jæja svona er sölumennskan allt gert til að græða á fólkinu svo þetta verður allt bara hin venjulegi hvertdagsleiki og engin tilhlökkun hjá neinum kannski maður opni páskaegg með Saltkjötinu nje held ekki
Góđ áminning fyrir okkur öll!!
25. janúar 2008 klukkan 23:40
Í grenndinni veit ég um vin sem ég á
í viðáttu stórborgarinnar
en dagarnir æða mér óðfluga frá
og árin án vitundar minnar.
Og yfir til vinarins aldrei ég fer
enda í kappi við tímann
sjálfsagt þá veit hann ég vinur hans er
því viðtöl við áttum í símann.
En yngri vorum við vinirnir þá
af vinnunni þreyttir nú erum
hégómans takmarki hugðumst við ná
og hóflausan lífróður rérum.
Ég hringi á morgun ;;
ég hugsaði þá
svo hug minn fái hann skilið
en morgundagurinn endaði á
að ennþá jókst milli okkar bilið.
Dapurleg skilaboð dag einn ég fékk
að dáinn sé vinurinn kæri
Ég óskaði þess er að gröf hans ég gekk
að í grenndinni ennþá hann væri
Ef vin þú átt góðan í grennd
gleymdu ekki hvað sem á dynur
að albesta sending af himninum send
er sannur og einlægur vinur
Kertaljós
23. janúar 2008 klukkan 02:21

Læt loga ljós til minningar um Þórdísi Tinnu blessuð sé minning fallegrar Hetju
Myndir...
09. janúar 2008 klukkan 16:44
það eru komnar nokkrar myndir inn hér til hliðar gekk erfiðlega að koma þeim inn en því miður eru myndirnar frá Bubba tónleikum ekki góðar vélin eitthvað ílla stillt en skoðið kem svo með færslu inn í kvöld
Komiđ nýtt ár!
05. janúar 2008 klukkan 00:24
Gleðilegt ár öll sem eitt og takk fyrir gamla góða árið
Jæja Gamlársdagur rann upp og svaf ég frekar ílla þá nótt enda þegar ég vaknaði var maginn minn orðin frekar slappur enda byrjaði ég að æla um hádegis bil úff já ælupestin kom
var svo slöpp og ælandi framm eftir degi horfði nú á kryddsíld á milli þess sem ég faðmaði klósettið
síðan um 5 leitið var farið suður í veisluna hjá Haddý og co æðislegur matur hjá þeim svínabógur með öllu tilheyrandi nammi namm ég reyndi að borða smá og fékk mér eitt rauðvíns glas með hélt þessu niðri í smá stund og volla skilaði öllu saman í æluferð á klósettið úff ömurlegt reyndi nú að halda mér uppi framm eftir kvöldi horfði á skaupið sem var bara ágjætt alveg hægt að hlæja af því! Náði að sjá þegar skotið var upp öllu rakettu dæminu en fór svo bara að sofa fljótlega náði ekki að vera í öllu stuðinu
Ellý og co voru líka í matnum en Maggi hennar Ellý var í gifsi kall greyið slasaði sig í fótboltaleik á gamlárdag sleit hásin í löppinni úff ekki gott og er hann búinn að fara í aðgerð en hann verður kall greyið frá vinnu í nokkurn tíma
En hann nær sér það er fyrir öllu! svo komu Linda og Davíð með sín kríli og skutu upp með okkur svo kíktu Mamma og pabbi líka þannig að það var hálf fúlt að geta ekki tekið nógu vel á í gleðinni með þeim en svona er þetta bara rosa gaman enga síður og ástaþakkir fyrir okkur Haddý mín og helgi þetta var æði
Nýardagur var tekin í rólegheit og er ég búinn að vera ná mér alla vikuna fékk beinverki með þessu og var bara slöpp......þannig að ekki hef ég gert mikið þessa viku enda heimilið komið á hvolf þarf að þrífa á morgun annars kom Ester mín í morgun kl 8 í pössun svo við höfðum það gott krakkarnir byrjuðu aftur í skólanum í morgun og úff hvað þau voru þreytt enda liðið búið að vaka ansi lengi framm eftir undanfarið en jæja það er best að snúa þessu við ekki satt
Svo erum við Lára að fara á tónleikana með Bubba á morgun 5 jan jeminn hvað okkur hlakkar til þetta verður æðislegt bara er svo spennt að sjá hann í þessu dæmi hann á eftir að brillera eins og alltaf bara bestur
jæja kem inn annað kvöld og læt ykkur vita hvernig okkur bar að á tónleikunum skordal kveður að sinni og takk þig sem kvittið þið eru æði
Jæja Gamlársdagur rann upp og svaf ég frekar ílla þá nótt enda þegar ég vaknaði var maginn minn orðin frekar slappur enda byrjaði ég að æla um hádegis bil úff já ælupestin kom
Nýardagur var tekin í rólegheit og er ég búinn að vera ná mér alla vikuna fékk beinverki með þessu og var bara slöpp......þannig að ekki hef ég gert mikið þessa viku enda heimilið komið á hvolf þarf að þrífa á morgun annars kom Ester mín í morgun kl 8 í pössun svo við höfðum það gott krakkarnir byrjuðu aftur í skólanum í morgun og úff hvað þau voru þreytt enda liðið búið að vaka ansi lengi framm eftir undanfarið en jæja það er best að snúa þessu við ekki satt
Svo erum við Lára að fara á tónleikana með Bubba á morgun 5 jan jeminn hvað okkur hlakkar til þetta verður æðislegt bara er svo spennt að sjá hann í þessu dæmi hann á eftir að brillera eins og alltaf bara bestur
Jólin og fl..
31. desember 2007 klukkan 01:28
Jæja ætla að henda inn smá færslu....Jólin voru bara æðisleg Lóa og Maggi voru hjá okkur framm á 2 í jólum það var æði að hafa þau
jólamaturinn var svo góður prufaði léttsaltaðan Hamborgarhrygginn frá hagkaup sé ekki eftir því kaupi hann frammvegis! Fórum svo í veislu hjá Hjöddu á jóladag fengum hlaðborð af kökum nammi gott og gaman að hitta fjölsk hans Magga takk fyrir okkur Hjödda mín
Allir voru voða ánægðir með sínar jólagjafir enda ekki annað hægt takk fyrir okkur öll sem eitt:) þetta hefur verið frekar mikið letilíf á okkur sem er fínt bara gott að slappa af á þessum tíma og búa sig undir nýja árið ekki satt
Annars er búið að vera hér mikil ælupest í gangi alveg frá þorlák fyrst byrjaði Heimir hennar Guðmundu svo hefur þetta herjað á liðið koll af kolli úff ömurleg pest Maggi og Bimma ældu alla síðustu nótt svo ég er sú eina sem eftir er 7913 vona svo sannarlega að ég sleppi ligg á bæn ekki væri gaman að fá þetta á morgun þá myndi ég gráta bara
En Bimma greyið hún er svo óheppin heyrði hana kalla hástöfum MAMMA í nótt og hvað haldiði hún hafði verið að æla og sofnað svo með ÆLUFÖTUNA í fanginu og vaknaði við það að hún var búinn að hvolfa allri ælunni yfir sig og allt rúmmið ojjjj svo ég varð að rífa utan af öllu og hún greyið að skipta um föt jeminn hvað þetta var rosalegt var alveg við það að fara æla en slapp og vonandi áframm krossið putta fyrir mig Elskur!!!!
verðum hjá Haddý og co í mat annað kvöld og Ellý og co líka þannig að það verður fjölmennt þar og mikið fjör vonandi að það verði gott skaup í ár og fólk nái að kveðja gamla árið með flugeldum og ekki verði neitt ofsa rok jæja takk fyrir árið Elskur og meigi nýtt ár færa okkur gleði í hjarta knús á línuna skordal sem liggur á bæn
Annars er búið að vera hér mikil ælupest í gangi alveg frá þorlák fyrst byrjaði Heimir hennar Guðmundu svo hefur þetta herjað á liðið koll af kolli úff ömurleg pest Maggi og Bimma ældu alla síðustu nótt svo ég er sú eina sem eftir er 7913 vona svo sannarlega að ég sleppi ligg á bæn ekki væri gaman að fá þetta á morgun þá myndi ég gráta bara
verðum hjá Haddý og co í mat annað kvöld og Ellý og co líka þannig að það verður fjölmennt þar og mikið fjör vonandi að það verði gott skaup í ár og fólk nái að kveðja gamla árið með flugeldum og ekki verði neitt ofsa rok jæja takk fyrir árið Elskur og meigi nýtt ár færa okkur gleði í hjarta knús á línuna skordal sem liggur á bæn
Jólajóla....
25. desember 2007 klukkan 23:27
Gleðileg jól Elskur og hafið það gott kem inn með jólablogg á morgun:)